Job 22

1Þá svaraði Elífas frá Teman og sagði: 2Vinnur maðurinn Guði gagn? Nei, sjálfum sér vinnur vitur maður gagn. 3Er það ábati fyrir hinn Almáttka, að þú ert réttlátur, eða ávinningur, að þú lifir grandvöru lífi? 4Er það vegna guðsótta þíns, að hann refsar þér, að hann dregur þig fyrir dóm? 5Er ekki vonska þín mikil og misgjörðir þínar óþrjótandi? 6Því að þú tókst veð af bræðrum þínum að ástæðulausu og færðir fáklædda menn úr flíkum þeirra. 7Þú gafst ekki hinum örmagna vatn að drekka, og hinum hungraða synjaðir þú brauðs. 8En hinn voldugi átti landið, og virðingarmaðurinn bjó í því. 9Ekkjur lést þú fara burt tómhentar, og armleggir munaðarleysingjanna voru brotnir sundur. 10Fyrir því eru snörur allt í kringum þig, og fyrir því skelfir ótti þig skyndilega! 11Eða sér þú ekki myrkrið og vatnaflauminn, sem hylur þig? 12Er ekki Guð himinhár? og lít þú á hvirfil stjarnanna, hve hátt þær gnæfa! 13Og þú segir: ,,Hvað veit Guð? Getur hann dæmt gegnum skýsortann? 14Skýin skyggja á hann, svo að hann sér ekki, og hann gengur á himinhvelfingunni.`` 15Ætlar þú að halda fortíðar leið, þá er ranglátir menn hafa farið? 16Þeir er kippt var burt fyrir tímann og grundvöllur þeirra skolaðist burt sem straumur, 17þeir er sögðu við Guð: ,,Vík frá oss! og hvað gæti hinn Almáttki gjört fyrir oss?`` 18og það þó hann fyllti hús þeirra blessun. _ Hugarfar óguðlegra sé fjarri mér! 19Hinir réttlátu sjá það og gleðjast, og hinn saklausi gjörir gys að þeim: 20,,Vissulega er andstæðingur vor að engu orðinn, og eldurinn hefir eytt leifum þeirra.`` 21Vingast þú við Guð, þá muntu vera í friði, við það mun blessun yfir þig koma. 22Tak á móti kenning af munni hans, og fest þér orð hans í hjarta. 23Ef þú snýr þér til hins Almáttka, auðmýkir þig, ef þú rekur ranglætið langt burt frá tjaldi þínu _ 24já, varpaðu gullinu í duftið og skíragullinu ofan í lækjamölina! _ 25þá skal hinn Almáttki vera gull þitt, vera þér hið skærasta silfur. 26Já, þá munt þú hafa yndi af hinum Almáttka og lyfta augliti þínu til Guðs. 27Biðjir þú til hans, bænheyrir hann þig, og heit þín munt þú greiða. 28Og áformir þú eitthvað, mun þér heppnast það, og birta skína yfir vegu þína. 29Þegar þeir liggja niður á við, þá kallar þú ,,Upp á við!`` og hinum auðmjúka hjálpar hann. 30Hann bjargar jafnvel þeim, sem ekki er saklaus, já, hann bjargast fyrir hreinleik handa þinna.
Copyright information for Icelandic